MÚSÍMÚS

Bjartsýni er smitandi, skortur á henni líka!

þriðjudagur, október 19, 2004

kakkalakkahakkkökubakkatakkalakk

Ef maður tekur kakkalakka og hakkar hann í sundur þá er komið kakkalakkahakk.

Ef maður býr svo til köku úr því þá er komin kakkalakkahakkkaka.

Ef maður setur það svo á bakka þá er kominn kakkalakkahakkkökubakki.

Ef maður setur svo takka á bakkann þá er kominn kakkalakkahakkkökubakkatakki.

Ef maður lakkar takkann þá er komið kakkalakkahakkkökubakkatakkalakk

Ef maður pakkar svo öllu saman inn þá er kominn kakkalakkahakkkökubakkatakkalakk... í pakka!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home